20nóvember

Jæja er komin aftur í netheima

Vá hvað vika er lengi að líða þegar maður er ekki með netið. Búið að vera brjálæðislegt vesen að fá netið tengt hjá mér út af eitthverju bulli. En alla vega ég er fegin að geta skoðað póstinn minn og fleira núna.
Þetta er bara eins og að vera ekki með símann sinn í viku, maður er orðinn svo háður netinu.
En annars er voða lítið að gerast hjá mér, bara síðustu skilaverkefnin og hlutapróf. Svo er bara próftörnin að skella á. Mikið hlakka ég til að komast í jólafrí. Get ekki beðið. En ætli maður reyni ekki bara að vinna svolítið. Veitir ekkert af smá pening svona fyrir jólin.
En jæja segi þetta gott í bili
Glottandi
20. nóvember 2007 klukkan 12:26
Sandra María Sævarsdóttir
Engin athugasemd
30október

Próf!!

 

Það er eitthvað við það að þegar ég á að vera að læra undir próf, að þá fer ég alltaf að gera eitthvað allt annað. Að þrífa alla íbúðina, hljómar mjög spennandi í samanburði við að lesa stærðfræði og reyna að leggja á minnið allar reglur og skilgreiningar. Meira að segja að þrífa klósettið, hvað er málið!
 Ég man ég gerði þetta líka þegar ég var yngri, en þá var það meira bara kannski taka til í herberginu sínu. Ég helt nú að þar sem ég væri orðin svo stór og fullorðin núna að ég myndi hafa einstaka þolinmæði gagnvart þessu, en neibb, ég er eiginlega verri. Því fyrir utan þrifin ligg ég í símanum, ég sem nenni yfirleitt ekki mikið að tjatta í símann, er búin að hanga í símanum alla helgina, og örugglega búin að tala fyrir slatta af pening Óákveðinn

En svo í þokkabót ákvað miðstöðin í bílnum bara að hætta að virka. Akkúrat þegar kuldinn og frostið byrjar, þá fer miðstöðin bara í verkfall. Svo það er ekki hægt að keyra bílinn minn því ég sé ekki út um gluggann út af móðu!!  Svo fékk ég fyrst inn á verkstæði 8 nóv. Þannig að mín verður bara að taka strætó út um allt núna. Í fyrstu gekk það svo sem ekkert allt of vel. Er enn að prófa mig áfram með leiðakerfið hérna í breiðholtinu. Svo er ég svo einstaklega heppin, eða svona mikil ljóska að ég var á leiðinni í skólann og nýbúin að komast að því að einn strætóinn stoppar beint hjá skólanum. Ég tek strætóinn, sem stendur á Mjódd, eins og hann sé á leið niðrí bæ. Rúnta með honum í svona 20 mín, endar hann ekki bara aftur í breiðholtinu!! Þá tók ég hann vitlausu megin við götuna. Já þannig að ég var örugglega 50 mín á leiðinni upp í skóla. En þetta er allt að koma. Maður lærir af mistökunumHlæjandi

30. október 2007 klukkan 21:38
Sandra María Sævarsdóttir
3 athugasemdir
26október

Er komin aftur!!

Jæja ég er enn á lífi, bara svona ef þið voruð að velta fyrir ykkur.

Margt búið að gerast síðan í sumar.

Ég er byrjuð í háskólanum og ákvað að fara aftur í matvælafræði.  Það er bara mjög fínt að vera byrjuð aftur en líka frekar erfitt.  Síðan er ég bara að vinna í Hreyfingu um helgar til að hafa smá auka pening með skólanum. Svo maður er alltaf á fullu.

Síðan keypti ég mér mína fyrstu íbúð fyrir stuttu. Svo það er bara frábært. Geggjað að geta ráðið öllu sjálfur og gert hvað sem mig langar til hvenær sem mig langar til.

Svo það eru miklar breytingar núna hjá mér, allt að gerast á sama tíma eitthvern veginn.

Þannig að tíminn flýgur bara áfram og mér finnst ég aldrei ná að klára allt sem ég ætlaði að gera.

En ég ætla að reyna að byrja að blogga smá aftur.

Svo nú er það bara stærðfræðipróf á miðvikudaginn. Svo ég fæ rosa skemmtilega helgi, eða þannigÓákveðinn...

26. október 2007 klukkan 20:32
Sandra María Sævarsdóttir
1 athugasemd
26júní

Marmaris...

Jæja þá er maður kominn heim frá Tyrklandi. Alveg meiriháttar ferð. Allt var bara frábært, hótelið, maturinn og Tyrkirnir sjálfir alveg æðislegir. Mæli sko með því fyrir alla að fara til Tyrklands.

Tyrkirnir eru svo þjónustulundaðir að þeir gera allt fyrir mann, eins og hlaupa út í búð fyrir þig ef þú ert á veitingahúsi og þeir eiga ekki til það gos sem þér langar í. Gefa fólki ókeypis axlanudd á veitingastað eða elda bara það sem þér langar í þó það sé ekki á matseðlinum. Einn hljóp meira segja í næstu búð til að redda okkur sokkapari þegar ein litla skvísan var með hælssæri. Alveg ótrúlegt...
Við gerðum náttúrulega ýmislegt þarna, eins og fara í alls konar bátasiglingar. Fjórhjólasafarí og meðal annars ferð til hinnar fornu borgar Rómaveldis, Efesus.
Einnig fóru allir í tyrknest bað því það er bara eitthvað sem maður verður að prófa. Algert dekur í 2 tíma Glottandi

Það er svo margt hægt að gera að dagarnir líða þvílíkt hratt.Ég er meira að segja mikið að pæla í því að fara aftur í ágúst, svona rétt áður en maður byrjar í skólanum á fullu.En ég er bara byrjuð að hlakka til að fara í skólann og láta reyna eitthvað á heilann til tilbreytingar. Já það verður fínt að setjast á skólabekk.Kveð að sinni ;)Sandra
26. júní 2007 klukkan 17:34
Sandra María Sævarsdóttir
5 athugasemdir
19maí

Besta Barnapía ever!!

Það er orðið soldið langt síðan maður hefur skrifað eitthvað.
Ég er búin að vera mjög dugleg í barnapíu starfinu þessa dagana. Mest megnis að passa hús og börn.
Núna er ég sem sagt með systkini mín hjá pabba og Siggu.
Þau eru reyndar rosa góð og segja já við öllu sem ég bið þau. Svo fer maður bara í mat hjá ömmu og afa alltaf í þvílíkar kræsingar. Ekki slæmt!!
Ég er búin að vera rosa dugleg í að æfa mig í hlaupunum, er farin að geta skokkað 10 km án þess að vera búin á því.
Þarf reyndar aðeins að fara að bæta tímann minn, hehe Hélt ég væri orðin rosa góð þar til ég sá að það eru aðrir mun betri en ég. Svo nú þarf ég að bæta mig ;)
Dagurinn í dag mun vera hinn besti letidagur þar sem ég ætla að eyða honum úti í garði með köngulónum sem eru alls staðar og sóla mig aðeins.
Síðan er planið á morgun að fara á skauta sem ég hef ekki gert heillengi. En það verður bara gaman.
Njótið dagsins.
Sólarkv. Sandra ;)

19. maí 2007 klukkan 15:24
Sandra María Sævarsdóttir
Engin athugasemd
05maí

Hrósbikar!!

Ég er svo montin að ég má til með að segja ykkur að ég fékk hrósbikar í vinnunni á föstudaginn.
Mjög góður dagur by the way.
Byrjaði á því að fara í einkaþjálfun hjá Kristjönu og lét hana aðeins pína mig.
Síðan lá leiðin í Snyrtiskólann til Kötlu. Þar fékk ég þvílikt dekur, andlitsbað, litun og plokkun og andlitsnudd. Sem er bara alger lúxus.
Eftir það bruna ég í vinnuna og er varla byrjuð að vinna þegar Ósk kemur niður með bikar og byrja ég eitthvað að djóka í henni hvort þetta væri nú ekki handa mér. Sem reyndist svo rétt. Þá var búið að vera svona hrósleikur, þar sem allir áttu að vera duglegir að hrósa samstarfsfélögum sínum. Sá sem fékk mesta hrósið fékk svo bikar í verðlaun og viðurkenningu.
Rosa sniðug hugmynd, hehe ;)
En Stefán Karel litli bróðir átti afmæli í gær og einnig Valli. Því var þvílik veisla þegar ég kom heim úr vinnunni. Bara ostakaka og flott heit.
Eftir allt kökuátið ákvað ég að fara út að hlaupa í morgun og hljóp alveg 9,5 km. Mjög stolt af sjálfri mér.
En svo er afgreiðsluhittingur í kvöld hjá okkur stelpunum í Hreyfingu. Erum að kveðja hana Gúu okkar.
Ætlum að drekka kokkteila og svona. Verður örugglega mjög gaman því við erum náttúrulega svo skemmtilegar allar, hehe
05. maí 2007 klukkan 17:25
Sandra María Sævarsdóttir
2 athugasemdir
02maí

jæja, þá er mömmu helgin búin.

Hún var alveg ótrúlega fljót að líða. Allt gekk eitthvað svo vel og Anya María var algert ljós allan tímann. Svo var nú ekki mikið að hafa fyrir bræðrum hennar.

Ég get nú alveg viðurkennt það að ég  var strax byrjuð að sakna þess að vakna með litlu dúllunni á morgnana. Þegar hún vaknar þá hjalar hún bara og talar eitthvað við sjálfa sig  og er bara alveg róleg upp í rúmi hjá manni. Algert krútt!!

Svo fékk ég nú líka góða hjálp frá Íris Thelmu og Laini Marie, frænkum.

Takk fyrir hjálpina stelpur ;)

En þá er bara hversdagslífið aftur komið í gang. Sofa, vinna og kannski á æfingu þar sem maður er að fara til Tyrklands eftir mánuð.

Katla vinkona hringdi svo í mig og spurði hvort ég væri ekki bara til í að koma í andlitsbað, litun og plokkun og alles á föstudaginn. Ekki amalegt að byrja daginn á því, hehe.

En svo er planið að æfa sig eitthvað í hlaupum í sumar. Stefnan er sett á 10 km í Reykjarvíkur maraþoninu með Dóru og kannski ef  við verðum súper góðar hálfmaraþon.

Maður veit aldrei, sjáum til.

Segi þetta gott í bili

 
02. maí 2007 klukkan 22:51
Sandra María Sævarsdóttir
3 athugasemdir
25apríl

  hvað dagarnir eru fljótir að líða. Rétt um mánuður þar til maður verður á sólarströnd að slappa af.

Ég fór annars á Ladda sýninguna á Sumardaginn fyrsta. Alveg geggjuð sýning.

Ég hló svo mikið að ég var með harðsperrur í maganum og gjörsamlega grenjaði úr hlátri. Það er ótrúlegt hvað þessi maður getur fengið mann til að hlæja.

En það var ekkert djamm á mér síðustu helgi, var bara mjög róleg og eldaði þennan dýrindis kjúkling á laugardaginn.

Svo var Helga María systir hennar mömmu svo yndisleg að setja á mig gelneglur í gær, svo mar er rosa flottur ;)

Næstu helgi er ég svo að passa fyrir hana HM litluna hennar heila helgi. Ég hlakka nú bara til því hún er svo mikið krútt., bara 5 mánaða gömul. Það verður gaman að prófa að vera svona “mamma” í nokkra daga.

Ég lét annars athuga með myndakubbinn minn en allar myndirnar mínar glötuðust og var ekkert hægt að gera í því, sem var frekar súrt.

En ég fékk nýjan og því verð ég bara að vera dugleg að taka nýjar myndir.

Bless í biliGlottandi

25. apríl 2007 klukkan 14:54
Sandra María Sævarsdóttir
2 athugasemdir
12apríl

Jæja þá er páskafríið búið og venjulegir vinnudagar hafnir. Samt mjög ánægð hvað þetta er stutt vinnuvika svo helgin er næstum komin.
Ég er búin að hafa það ótrúlega nice yfir páskana, búin að búa heima hjá Helgu Maríu frænku í næstum tvær vikur. Rosa fínt að komast aðeins úr foreldrahúsum. Ég, Dóra og Karen skelltum okkur svo til Akureyrar á laugardaginn. Fórum á fitness mótið til að hvetja stelpurnar sem voru að taka þátt frá Hreyfingu.

Tókum svo bara sénsinn á gistingu og fengum svo þetta góða herbergi á Hótel Kea.

Kallinn í móttökunni gaf okkur þvílíkan afslátt á herberginu og var það náttúrulega bara frábært. Svo skelltum við okkur bara á Sjallann þar sem Paparnir voru að spila og það var geggjað stuð.

Vorum svolítið þunnar daginn eftir þar sem við vorum að keyra í bæinn kl 10 um morguninn á páskadag.

Páskadegi var því eytt upp í rúmi sofandi…. Ekki alveg nógu gott.

Annars ætla ég að reyna að vinna í því að setja myndir á síðuna svo þá getiði skoðað eitthvað af myndunum úr ferðinni.

Kveð að sinni, BæjóGlottandi

12. apríl 2007 klukkan 20:02
Sandra María Sævarsdóttir
3 athugasemdir
04apríl

Jæja, hef ákveðið að byrja að blogga aftur

Ég ætla alla vega að reyna það. Sjáum nú til með hve lengi ég held það út.
Það styttist í páskana og er planið  að fara annað hvort til Akureyrar með ofurskvísunum Dóru og Sigrúnu eða kannski í jebbaferð með Dóru ef ég fæ að fljóta með.
Allt að gerast á Akureyri um páskana, fitness mót í gangi þar sem fullt af fólki úr Hreyfingu er að fara að taka þátt. Svo verður bara djamm og fleira. Það verður bara mega stuð hvort sem verður..Hlæjandi

Ég og Laini Marie frænka heldum smá matarboð fyrir vini og skyldmenni í gær.
Stóðum okkur rosa vel sem gestgjafar, elduðum salsa kjúklingarétt sem var ógeðslega góður og bökuðum svo köku í eftirrétt.
Fór kannski aðeins of mikill tími í baksturinn svo við gleymdum aðeins eldamennskunni, en náðum þó að redda öllu á endanum.
Skemmtum okkur öll rosa vel, alla vega var mikið borðað og mikið hlegiðGlottandi

Kveð í bili
Sandra

04. apríl 2007 klukkan 00:56
Sandra María Sævarsdóttir
1 athugasemd

Aðalvalmynd

Myndirnar mínar

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Um mig

  • Nafn: Sandra María Sævarsdóttir
  • Staður: Reykjavík
  • Atvinna: Vinn í afgreiðslunni í Hreyfingu
  • Hjúskaparstaða: Á lausu
  • Um mig: Ég er 24 ára Reykjavíkurmær

Klukkan